EINUNGIS VATN OG SYKUR
ENGIN KEMÍSK EFNI
Innihaldsefni
Súkrósi *, glúkósi*, frúktósi*, aqua, natríumklóríð..
= lífrænt ræktuð efni.
89% allra innihaldsefna eru lífrænt ræktuð.
Lestu meira um viðhorf okkar til innihaldsefna, gæða og sjálfbærni hér.
„Við teljum þessa nýju vöru spennandi og mildan valkost við kemísk háreyðingarefni. HEVI Sugaring hefur auk þess fengið Bláa kransinn frá Astma- og ofnæmissamtökum Danmerkur og það er til marks um hversu einstök og mild varan er og ég mæli eindregið með að neytendur prófi HEVI Sugaring þegar þeir hyggjast fjarlægja óæskileg hár.
Henrik E. Johannsen – Yfirmaður upplýsinga- og umhverfismála, höfuðstöðvum Matas.
Aðeins sykur og vatn Engin hættuleg efni
Innihaldsefni í sykurvaxi hafa einkum þrjá frábæra eiginleika.
1. Minni sársauki
HEVI Bodysugaring fjarlægir líkamshár á auðveldan og árangursríkan hátt og öfugt við aðrar vaxvörur er hárunum kippt út í sömu átt og þau vaxa en EKKI gegn vaxtaráttinni. Þetta gerir meðferðina sársaukaminni, brotnum hárum fækkar, dregur úr hárvexti til lengdar og lokaútkoman verður betri og fallegri.
2. Auðveld þrif
HEVI Bodysugaring er vatnsleysanleg vara sem þýðir að þrif eru auðveld eftir meðferð, einfaldlega með volgu vatni. Það þýðir einnig að ekki er hægt að nota HEVI Bodysugaring ef húðin er rök, þess vegna er gott að nota HEVI púður.
3. Fjarlægir dauðar húðfrumur
Eftir meðferð með HEVI Bodysugaring verður húðin silkimjúk vegna þess að sykurvaxið fjarlægir allar dauðar húðfrumur.
Aðrar vaxvörur eru oft svo sterkar að þær fjarlægja líka margar lifandi húðfrumur en það getur HEVI Bodysugaring ekki því að lifandi húðfrumur eru rakar.
HEVI Bodysugaring hentar öllum húðgerðum og getur jafnvel haft góð áhrif á exem og psóríasis þar sem það fjarlægir efsta lag dauðra húðfrumna og eflir heilbrigði í neðri lögum húðarinnar.